HomeHub · Innri gátt fyrirtækisins

Allt sem starfsfólkið þarf, á einum stað

HomeHub heldur utan um fólkið, eignirnar, verkin og viðskiptavinina: eignaskrá með ábyrgðum og endurnýjunum, tímaskráningu, stimpilklukku og verkefni, þjónustubeiðnir sem berast í pósti, viðskiptavini, tilboð og söluferli, og rafræna auðkenningu í símaþjónustu. Starfsfólkið skráir sig inn með aðganginum sem það notar nú þegar.

  • Innskráning með Microsoft 365 eða Google
  • Á íslensku og ensku
  • Ljóst og dökkt útlit
  • Netheimur sér um rekstur og þjónustu

Sýnidæmi: Ljósvirki ehf. er tilbúið fyrirtæki og öll gögn á myndunum eru tilbúin.

Hvað tæki það ykkur langan tíma að telja upp allan vélbúnaðinn?

Hvað er í notkun, hvað stendur laust í geymslu og hvaða ábyrgðir renna út í næsta mánuði? Í HomeHub er svarið ein síða.

Eignaskrá

Vélbúnaður, leyfi, lén og bílar — með dagsetningum

Hver eining á sína færslu: hver er með hana, hvar hún er, hvenær ábyrgðin rennur út og hvort hún er í notkun eða laus. Sama gildir um hugbúnaðarleyfi, lén fyrirtækisins og bílaflotann — fjórar skrár, hver með sinn umsjónarmann.

  • Ábyrgðir, endurnýjanir og skoðunardagar á hverri færslu
  • Laus búnaður sést strax, með staðsetningu
  • Leyfi skráð á notendur, með fjölda sæta í notkun
  • Lén með endurnýjunardegi og DNS-færslum úr Cloudflare
  • Áminningar um skoðun og þjónustu bíla í tölvupósti eða SMS
  • Notendur og leyfi í Microsoft 365 lesin beint úr kerfinu, og listinn sóttur í Excel
  • Nýr starfsmaður? Beiðni um aðganga fer til tölvuþjónustunnar og staðan sést í gáttinni
Hugbúnaður og leyfi
Lén
Bílafloti

Tímaskráning og verkefni

Tímarnir skráðir þar sem vinnan er

Starfsfólk skráir tíma í sömu gátt og það opnar hvort eð er á morgnana — á verkþátt, verkefni eða viðskiptavin, með tímamæli, klukku eða bara lengd, eða heila viku í einu. Verkþættirnir eru unnir saman: athugasemdir, @-nefningar og saga breytinga á hverjum þeirra, og skjárinn uppfærist um leið og samstarfsmaður breytir einhverju. Stjórnendur sjá mánuðinn í einu grafi og taka tímana saman eftir fólki, verkefnum og viðskiptavinum.

  • Verkefni og verkþættir með ábyrgðaraðilum, gátlistum, skiladögum og tímaáætlun
  • Athugasemdir með @-nefningum, og tilkynningar í kerfinu, í tölvupósti eða í daglegri samantekt
  • Tímamælir í haus síðunnar og vikutafla til að fylla út heila viku í einu
  • Listi, tafla og dagatal yfir verkin
  • Tímar merktir sem útseldir eða innri vinna
Verkþáttur
Vikutafla
Dagatal

Stimpilklukka

Stimplað inn við dyrnar eða úr símanum

Starfsfólk stimplar sig inn og út úr eigin tölvu eða síma, eða á stimpilstöð við dyrnar með korti eða kennitölu. Gleymd útstimplun lokast sjálf á þeim tíma sem þið veljið og leiðréttingar fara til samþykktar. Í lok mánaðar sækir sá sem sér um launin tíma hvers og eins í einni skrá.

  • Stimpilstöð á spjaldtölvu við dyrnar, með korti eða kennitölu
  • Hverjir eru inni sést strax, líka í starfsmannaskránni
  • Leiðréttingar og gleymdar stimplanir fara til samþykktar
  • Tímar á mann sem CSV fyrir launavinnslu
  • Stimpilklukkan sést sem lína í tímaskráningunni, við hliðina á skráðum tímum
Minn tími
Í tímaskráningu
Inni eða úti

Viðskiptavinir, tilboð og söluferli

Frá fyrsta símtali að samþykktu tilboði

Viðskiptavinaskráin, verðlistinn, tilboðin og söluferlið eru tengd. Sölutækifæri fer í gegnum stigin sem þið skilgreinið sjálf, með vörum úr verðlistanum, samstarfsfólki og samskiptasögu. Tilboðið er búið til úr sömu línum, sent sem PDF og fryst um leið, svo það sem viðskiptavinurinn fékk breytist aldrei eftir á. Tækifæri sem hafa staðnað eru merkt, svo ekkert gleymist.

  • Ykkar eigin stig í söluferlinu, með líkum á sölu
  • Tilboð beint úr sölutækifæri, sent sem PDF
  • Fyrirspurnarform fyrir vefinn ykkar sem stofnar nýtt sölutækifæri
  • Skýrslur: unnið og tapað, spá, uppruni og ástæður taps
  • Áskriftarsamningar, og endurnýjun opnuð 90 dögum fyrir lok
  • Síða hvers viðskiptavinar með samskiptum, beiðnum, verkum, tímum og tilboðum
  • Viðskiptavinir og vörur sóttar úr Uniconta, Payday eða DK Plus, eða fluttar inn sem CSV
Skýrslur
Samskiptasaga
Tilboð

Þjónustubeiðnir

Enginn póstur týnist í sameiginlegu pósthólfi

Póstur sem viðskiptavinir senda á þjónustunetföngin ykkar verður að beiðni með númeri, forgangi og ábyrgðaraðila. Svarið fer frá sama netfangi með undirskrift fyrirtækisins, og allt samtalið er á einum stað. Biðröðin sýnir hvað er nýtt, hvað er þitt og hvað er komið fram yfir svartíma, og uppfærist jafnóðum hjá öllum sem vinna í henni.

  • Mörg pósthólf, hvert með sína meðlimi, reglur og tilbúin svör
  • Svartímamarkmið, með viðvörun áður en þau renna út
  • Innri athugasemdir með @-nefningum, sem viðskiptavinurinn sér aldrei
  • Verk búið til úr beiðni, og beiðnin skráð á viðskiptavininn
  • Tengist Microsoft 365, eða hvaða pósthólfi sem er með IMAP
Samtalið
Á síðu viðskiptavinar
Tilkynningar

Rafræn auðkenning

„Ég þekki röddina“ er ekki auðkenning

Þegar beiðni berst í síma sendir starfsmaðurinn auðkenningarbeiðni með einum smelli. Viðskiptavinurinn staðfestir með rafrænum skilríkjum og svarið kemur til baka með nafni og kennitölu úr fullgildu skilríki. Beiðnin er skráð með tímastimpli — bæði starfsmaðurinn og viðskiptavinurinn eru varðir.

  1. 1Beiðni berst símleiðis
  2. 2Starfsmaður sendir auðkenningarbeiðni
  3. 3Viðskiptavinur staðfestir í símanum
  4. ✓Auðkennt og skráð, með nafni og tíma

Fólkið

Hver er hver, og hver er í fríi?

Starfsmannaskráin uppfærir sig sjálf úr Microsoft 365, með starfsheiti, deild og farsíma. Fríin eru á einu dagatali með íslenskum frídögum, og á Mitt svæði raðar hver og einn því sem hann þarf: verkunum sínum, tímunum, stimpilklukkunni, búnaðinum og leyfunum. Nýr starfsmaður finnur það sem hann þarf án þess að spyrja þrjá aðila.

  • Starfsmannaskrá með myndum, starfsheitum og afmælum, og hverjir eru inni
  • Fríbeiðnir, samþykki og mánaðardagatal fyrir allt fyrirtækið
  • Mitt svæði sem hver og einn raðar sjálfur
  • Kannanir til starfsfólks, nafnlausar ef þarf
  • Tölvupóstundirskrift í útliti fyrirtækisins
Fjarvistir
Mitt svæði
Kannanir

Ljóst og dökkt útlit

Ljóst eða dökkt — hver og einn velur

HomeHub fylgir stillingu tækisins, eða því sem hver starfsmaður velur sjálfur, og litir og merki fyrirtækisins fylgja með í báðum. Dragðu sleðann til að bera saman.

Tímaskráning í ljósu útliti Tímaskráning í dökku útliti

Af hverju

Þið eruð þegar að borga fyrir þetta

Bara í tíma starfsfólks, tvíkeyptum búnaði og leyfum sem enginn notar.

Í dag

Með HomeHub

Eignaskráin er Excel-skjal sem einn maður uppfærir stundum

Lifandi skrá sem allir með aðgang sjá og geta uppfært

Ábyrgðir og endurnýjanir renna út án þess að nokkur taki eftir

Dagsetning á hverri færslu og áminningar um skoðun og þjónustu bíla

Nýjar vélar keyptar á meðan nothæfar standa í geymslu

Sést strax hvað er laust og hvar það er

Hugbúnaðarleyfi greidd fyrir fólk sem er hætt

Leyfin skráð á notendur, svo það sést hvaða sæti losna

Tímar teknir saman úr minni og Excel í lok mánaðar

Skráðir jafnóðum á verkþátt og viðskiptavin

Viðvera skráð á blað og slegin inn fyrir launavinnslu

Stimplað inn með korti eða síma, og tímarnir sóttir í einni skrá

Póstur í sameiginlegu pósthólfi sem enginn ber ábyrgð á

Hver póstur verður að beiðni með ábyrgðaraðila og svartíma

Tilboð í Word-skjali á skjáborði eins starfsmanns

Tilboð úr verðlista, send sem PDF og geymd í kerfinu

Upplýsingar gefnar í síma án auðkenningar

Viðskiptavinur staðfestir sig með rafrænum skilríkjum

Fjögur kerfi, fjórar innskráningar, fjórir reikningar

Ein gátt, ein innskráning, einn þjónustuaðili

Einingarnar

Tuttugu og fjórar einingar. Þið veljið hverjar.

Hver eining er kveikt fyrir sig, og hvert hlutverk fær sín réttindi í hverri þeirra: að lesa, stofna, breyta og eyða.

Fólkið og gáttin

Forsíða og tenglar

Upphafssíða gáttarinnar: tenglar á kerfi, birgja og verkfæri í flokkum, og síður sem deildirnar halda sjálfar við.

Starfsmannaskrá

Allt starfsfólkið með mynd, starfsheiti, síma og afmælisdegi, sótt sjálfkrafa úr Microsoft 365.

Fjarvistir

Orlof, veikindi og veikindi barna: beiðnir, samþykki og mánaðardagatal með íslenskum frídögum.

Vinnustaðurinn

Síða fyrirtækisins sjálfs: stofnár, fjöldi starfsfólks og hvað fyrirtækið gerir, með eigin orðum.

Mitt svæði

Svæði sem hver starfsmaður raðar sjálfur: verkin hans, tímarnir, stimpilklukkan, búnaðurinn og leyfin.

Tölvupóstundirskrift

Undirskrift í útliti fyrirtækisins, búin til úr nafni, starfsheiti og síma og afrituð beint í póstforritið.

Kannanir

Spurningar til starfsfólks, svaraðar í gáttinni eða með tölvupósti, nafnlausar ef þarf. Tilbúin sniðmát fylgja.

Hópar

Hópar sem starfsfólk heldur sjálft, til að deila einkasíðum og tenglum með réttu fólki.

Eignir, verk og tími

Vélbúnaður

Tölvur, skjáir, símar, netbúnaður og prentarar: hver er með hvað, hvar það er og hvenær ábyrgðin rennur út.

Hugbúnaður og leyfi

Áskriftir og leyfi með fjölda sæta, endurnýjunardegi og þeim sem nota þau.

Lén

Lén fyrirtækisins með endurnýjunardögum, og DNS-færslur lesnar beint úr Cloudflare.

Bílafloti

Bílar með númeri, skoðunardegi, þjónustu og kílómetrastöðu, og áminningar í tölvupósti eða SMS.

Skýjaleyfi

Notendur og leyfi í Microsoft 365 eða Google Workspace, lesið beint úr kerfinu, og beiðni um nýjan notanda send til tölvuþjónustunnar.

Les beint úr ykkar eigin aðgangi.

Verkefni og verkþættir

Verkefni og verkþættir með ábyrgðaraðilum, gátlistum, skiladögum og athugasemdum. Listi, tafla og dagatal.

Tímaskráning

Tímar skráðir á verkþátt, verkefni eða viðskiptavin, útseldir eða innri, með tímamæli, vikutöflu og mánaðargrafi.

Stimpilklukka

Stimplað inn og út úr tölvu, síma eða stimpilstöð við dyrnar, með leiðréttingum og tímum á mann fyrir launavinnslu.

Viðskipti

Tengiliðir og þjónustuaðilar

Fólkið utan fyrirtækisins sem þarf að ná í, og fyrirtækin sem veita ykkur þjónustu.

Viðskiptavinir

Allir sem fyrirtækið selur, með kennitölu, VSK-númeri, bókhaldsnúmeri og greiðsluskilmálum.

Vöruskrá

Verðlistinn: vörur og þjónusta með verði, einingu og VSK-flokki.

Tilboð

Tilboð úr verðlistanum, send sem PDF í tölvupósti. Sent tilboð er fryst svo það breytist ekki eftir á.

Söluferli

Sölutækifæri í ykkar eigin stigum, með vörum, samstarfsfólki og samskiptasögu, skýrslum og fyrirspurnarformi fyrir vefinn.

Textaskilaboð (SMS)

SMS í gegnum Nova-aðgang fyrirtækisins, með móttakendahópum, sniðmátum og einnota öruggum hlekk fyrir viðkvæm gögn.

Rafræn auðkenning

Er sá sem er í símanum sá sem hann segist vera? Staðfesting með rafrænum skilríkjum í gegnum Dokobit.

Þjónustubeiðnir

Póstur á þjónustunetföngin verður að beiðnum með ábyrgðaraðila, forgangi og svartíma, svarað frá sama netfangi.

Öryggi og stjórnun

Öruggt án þess að vera flókið

Engin ný lykilorð

Starfsfólk skráir sig inn með Microsoft 365 eða Google Workspace, og tvíþætta auðkenningin er sú sem þið eruð þegar með. Fyrirtæki án þeirra skrá sig inn með kóða í tölvupósti og aðgangslykli (passkey).

Hver sér hvað

Fjögur innbyggð hlutverk og eins mörg ný og þið viljið. Réttindi eru stillt fyrir hverja einingu, og einn starfsmaður getur haft fleiri en eitt hlutverk.

Fólk sem hættir

Sá sem er gerður óvirkur kemst ekki inn, starfsmannaskráin er samstillt við Microsoft 365 á fimmtán mínútna fresti og öryggishópar í Entra ID ráða hverjir fá aðgang.

Atvikaskrá

Breytingar eru skráðar — hver gerði hvað og hvenær — og aðeins þeir sem fá aðgang að skránni sjá hana.

Í ykkar útliti

Merki og litir fyrirtækisins, í ljósu eða dökku útliti og á íslensku eða ensku eftir vali hvers og eins. Dagsetningar og upphæðir eftir íslenskum venjum.

Ykkar gögn, aðskilin

Hvert fyrirtæki er á sínu eigin léni og gögnin þess eru aðskilin frá öðrum. Kennitölur starfsfólks birtast aldrei í viðmótinu.

Pakkar

Þrjár leiðir inn

Verð ræðst af fjölda notenda og hvaða einingar eiga við. Innleiðing er innifalin í tilboði — við flytjum inn þau gögn sem við höfum þegar um búnaðinn ykkar.

Grunnur

Fyrir fyrirtæki sem vantar fyrst og fremst yfirsýn yfir fólk, eignir og leyfi.

  • Eignaskrá — vélbúnaður, leyfi, lén, bílar og skýjaleyfi
  • Forsíða, tenglar og hópar
  • Starfsmannaskrá, Mitt svæði og Vinnustaðurinn
  • Tengiliðir og þjónustuaðilar
  • Tölvupóstundirskrift
  • Fjarvistir, tímaskráning, stimpilklukka og verkefni
  • Þjónustubeiðnir
  • Viðskiptavinir, tilboð og söluferli
Fá verð

Heild

Fyrir fyrirtæki með sölu- eða þjónustuteymi sem vantar líka CRM.

  • Allt í Rekstri
  • Viðskiptavinir og vöruskrá
  • Tilboð og söluferli
  • SMS til viðskiptavina
  • Rafræn auðkenning innifalin
  • Tenging við Uniconta, Payday eða DK Plus
Fá verð

SMS fara um Nova-aðgang fyrirtækisins og rafræn auðkenning um Dokobit, samkvæmt verðskrá þeirra.

Bóka kynningu

Tuttugu mínútur, engin uppsetning

Við sýnum gáttina með gögnum fyrirtækis á stærð við ykkar og segjum ykkur hvað innleiðingin tæki langan tíma.

Björn Gestsson

Björn Gestsson

Sölu- og markaðsstjóri

Senda Birni línu

Skilaboðin berast beint til Björns, sem hefur samband til að finna tíma eða senda verð.

Hvað viltu fá?