Afbrigðavörur
Afbrigðavörum er safnað saman úr vörulista í bókhaldi. Þú setur vöruna saman á einfaldan hátt í Vefbrú og hún birtist í vefversluninni með öllum afbrigðum.
Hugbúnaðardeild
Vörulager, verð, vörunúmer, sölur og pantanir flæða sjálfkrafa milli bókhaldskerfisins og vefverslunarinnar — og til baka. Ein Vefbrú getur meira að segja fóðrað tvær vefverslanir frá sama vörulager.
Vinnusparnaður
Fyrir rúmlega 10 árum smíðuðum við lausn til að tengja saman DK og WooCommerce — lausn sem einfaldaði alla vinnslu og sölu í vefverslun. Út frá þeirri reynslu smíðuðum við Vefbrú.
Vefbrúin brúar bilið milli bókhaldskerfisins og WooCommerce vefverslunarinnar. Við höfum skoðað uppbyggingu þessara kerfa og þróað lausn sem einfaldar samskiptin verulega.
Með Vefbrúnni getur þú framkvæmt allar nauðsynlegar breytingar, hvort sem það eru verðbreytingar, lagerstaða eða sölupantanir, og þær uppfærast sjálfkrafa á milli kerfa.
Vefbrú er í stöðugri þróun hjá okkur og nýlega kláruðum við samþættingu við Uniconta. Með áframhaldandi þróun bætum við við fleiri bókhaldskerfum og virkni í framtíðinni.
Vefbrúin er áskriftarlausn sem felur í sér allt viðhald og áframhaldandi þróun.
Hafðu sambandAfbrigðavörur
Afbrigðavörur eru færðar úr vörulista í bókhaldskerfinu. Þú setur vöruna saman á einfaldan hátt í Vefbrú og vörurnar birtast í vefversluninni með öllum afbrigðum.
Gagnaflæði
Með Vefbrúnni getur þú framkvæmt allar nauðsynlegar breytingar — verðbreytingar, vörulager eða sölur. Upplýsingarnar flæða sjálfkrafa á milli kerfanna og spara þér tíma við uppfærslur.
Sölur, pantanir og reikningar fara sjálfkrafa beint í bókhaldið — engin handavinna, enginn tvíverknaður.
Eiginleikar
Afbrigðavörum er safnað saman úr vörulista í bókhaldi. Þú setur vöruna saman á einfaldan hátt í Vefbrú og hún birtist í vefversluninni með öllum afbrigðum.
Fyrirtæki geta haldið utan um og virkjað sérstök kjör eða sérverð sem ákveðnir viðskiptavinir hafa í bókhaldskerfinu, beint í gegnum vefverslunina eftir innskráningu.
Sérstakur eiginleiki sem tengir vörumyndir beint við vörunúmer (SKU). Kerfið samstillir og heldur utan um myndir vörunnar — margar myndir á hverja vöru eru studdar.
Gefur viðskiptavinum aðgang að „Mínum síðum“ þar sem þeir geta sjálfir flett upp eigin viðskiptasögu og séð stöðuna á reikningum og pöntunum.
Boðið er upp á rafræna innskráningu með Dokobit. Innleiðing og notkun fer eftir verðskrá Dokobit.
Virkar með Vefbrú
Nú hafa notendur Uniconta á Íslandi möguleika á að tengja kerfin saman.
Fjöldi viðskiptavina Netheims nýtir sér Vefbrúna milli WooCommerce og DK.

Vefbrú tengir Stólpa við WooCommerce — vörur, verð og sölur flæða milli kerfanna.
Við skoðum tenginguna með þér og segjum þér hreint út hvort hún er möguleg.
Bókaðu kynningu hjá okkur